Reddý / upplýsingar

Skilmálar

Uppfært 26. september 2026. Reddý er sjálfstæð æfingaþjónusta rekin af Róberti Nikulássyni. Hún er ekki opinbert próf og er hvorki rekin né samþykkt af Samgöngustofu eða Vegagerðinni.

Ókeypis prufa

Prufan inniheldur 15 spurningar og er án gjalds. Spurningarnar byggja á opinberum heimildum en hafa ekki enn verið yfirfarnar af ökukennara. Prufan kemur ekki í stað kennslu, opinberra gagna eða raunverulegs prófs og niðurstaða hennar er ekki spá um hvort þú standist prófið.

Greiddur aðgangur

Greiðslur og 50 spurninga æfingar eru ekki opnar enn. Fyrirhugað verð er 2.490 kr fyrir 90 daga aðgang, greitt einu sinni án áskriftar. Við birtum endanlega lýsingu, greiðslu- og endurgreiðsluskilmála áður en hægt verður að kaupa.

Villur og samband

Reglur og námsefni geta breyst. Láttu okkur vita ef þú finnur villu eða úrelta spurningu á reddy@reddy.is. Við getum leiðrétt eða fjarlægt efni meðan þjónustan er þróuð.