Reddý / upplýsingar
Persónuvernd
Uppfært 26. september 2026. Róbert Nikulásson rekur Reddý og tekur við fyrirspurnum um persónuupplýsingar á reddy@reddy.is.
Hvaða upplýsingar notum við?
Í ókeypis prufunni vistum við svör, niðurstöðu, tíma og handahófskennt auðkenni svo hægt sé að halda prufunni áfram. Vafrinn geymir nauðsynlega köku í allt að sjö daga; gagnagrunnurinn geymir aðeins dulritað fingrafar auðkennisins. Ef þú skráir þig inn vistum við netfangið þitt og getum tengt prufuniðurstöður við reikninginn.
Þegar greiðslur opna mun Polar sjá um greiðsluna. Reddý mun þá vista auðkenni greiddrar pöntunar og upphafs- og lokadag aðgangs, en ekki kortaupplýsingar. Greiðslur eru ekki opnar núna.
Tilgangur, varðveisla og aðilar
Við notum upplýsingarnar til að veita prufuna, sýna niðurstöður og halda utan um reikning og aðgang sem þú biður um. Nauðsynleg vinnsla byggist á því að veita þjónustuna; öryggis- og villugreining byggist á lögmætum hagsmunum okkar. Við notum ekki auglýsingakökur. Supabase hýsir reiknings- og prufugögn og Vercel hýsir vefinn; tæknilegar beiðnaskrár kunna að verða til hjá hýsingaraðilum.
Prufugögn og reikningsupplýsingar eru varðveitt meðan þeirra er þörf til að veita þjónustuna eða sinna lögbundnum skyldum. Þú getur óskað eftir aðgangi að gögnum, leiðréttingu eða eyðingu; við metum slíkar beiðnir eftir þeim reglum sem eiga við.
Réttindi þín
Þú getur haft samband vegna aðgangs, leiðréttingar, eyðingar, takmörkunar, andmæla eða flutnings gagna eftir því sem við á. Þú getur einnig sent kvörtun til Persónuverndar. Skrifaðu á reddy@reddy.is; ekki senda lykilorð eða greiðslukortaupplýsingar.